Ef þú brosir framan í heiminn, þá brosir heimurinn framan í þig:)
08.02.2006 15:59:43 / magga

......

...er búin að ákveða að skipta um síðu... ég nebbla kemst aldrei inná þessa í skólanum þannig að ég gerði bara nýja...:haha: --> www.blog.central.is/magnea

...ég mun halda áfram blogginu þar...

dánarstund: 8 febrúar 2006 kl. 15:59...:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 14:40:49 / magga

Til hamingju Ísland með ég að fæddist hér:D

-->  Sylvía Nótt - Til hamingju Ísland :haha: Djöfull er þetta flott lag :) Vona að hún komist áfram á morgun! Maður fer í litla stuðið við að hlusta á þetta:D Algjör snillingur:D *Töff töff töff*

Er bara heima að hanga... komin í helgarfrí:haha: Jibbí:!: Fór í plokkun&litun þegar ég kom frá Ak í morgun og svo beint í klippingu hjá Jonnu:P Ætla svo að fara í ljós á eftir8) Þá er ég góð;) Veit ekki hvað ég geri um helgina... Sólveig var e-ð að tala um að við og nokkrar stelpur ætluðum að hittast, panta pizzu og sötra bjór... og svo á barinn... hef ekki ennþá fenginn endanlegt svar frá þeim stöllum... það á allavegana víst að vera svakalegt partý á barnum... þannig að maður má búast við slatta af fólki ;) Dí nenni ekki að bíða þangað til á morgun... er ekki búin að gera neitt skemmtilegt síðan um áramótin... :$ *nerd* :S

Svo er ég byrjuð á fullu í ræktinni aftur8) *Bylgja fyrir því* Keypti mér 6 mánaða kort á mánudaginn og er búin að fara síðan þá á hverjum degi og púla og púla...:^) Ég er svo stolt af mér:!: Hehe:)

Sjibbí!!!!!!!!!! Ég er í svo góðu skapi:haha: Veit ekki af hverju... held að það sé upplagt að dríbba sig í jimmið núna... þoli ekki að fara þegar ég er í vondu skapi... þá nennir maður ekki neinu:S

"Verið góð við allt og alla, þá gengur allt svo miklu betur" Er það ekki?

Gangið hægt um gleðinnar dyr:haha:

Magnea... í stuði8) Íhhaaa:haha:

KVITTIÐI SVO FYRIR YKKUR...:klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 12:24:32 / magga

SKÍTASKINKA!!!!

Breta nokkrum brá í brún þegar hann sá að „hundaskítur“ var í innihaldslýsingu á skinkupakka sem hann hafði keypt.

Hann kannaði annan pakka og sá þar sama „aukaefni“. Hann kvaðst hafa misst lyst á skinkunni. „Þetta er óneitanlega fráhrindandi.“

Hann segir sig og konuna sína hafa hlegið mikið að þessu, en engu að síður ákveðið að senda börnin með eitthvað annað nesti í skólann.

Framleiðandi skinkunnar, HR Hargreaves & Son, kveðst hafa rekið starfsmanninn sem staðið hafi fyrir þessum hrekk og skinkan hefði verið innkölluð. „Það er ekki hægt að fólk sé að fíflast með matvæli.“

HAHAHAHAHA!!!! Bara fyndið:lol:

Nenni ekki að blogga... hef engar krassandi fréttir að færa ykkur:$

En KOMMON!!! Það eru nærriðí 30 manns búnir að koma inná síðuna í dag og ekki eitt einasta komment eða skrif í gestabókina!!:klikk:

Gerði sona próf um mig:D Það væri gaman að sjá hvað fólk veit mikið um mig:!: Allir að fara og svara:haha: ---> http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=060131073843-9830  

*Magnea sem er búin að vera í Bubbles í örugglega hálf tíma*:$

Out...


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 17:26:08 / magga

Varúð!!! Leiðinglegt blogg!!!!!!

Leiðist svo og ákvað að það væri kannski góð hugmynd að fara að blogga eilítið... er nú búin að sitja hér fyrir framan tölvuna í örugglega 10 mínútur og reyna að finna e-ð til að skrifa um... datt ekkert í hug... það er allt svo tilbreytingasnautt allt núna e-ð... langar bara að skríða oní holu með eitt stykki góða bók og kerti og vera þar í nokkra daga...þar sem enginn getur talað við mig og ég get ekki talað við neinn... kannski fleiri en eina bók svo að maður drepist nú ekki úr leiðindum...:S

Langar svo að gera e-ð skemmtilegt... langar að flytja...langar í heimsreisu! Flytja e-ð þar sem hægt er að gera e-ð skemmtilegt... er komin með ógeð á þessum bæ... :| er komin með ógeð á að keyra á milli... er komin með ógeð á fólki sem... þetta er nóg:!:

Var að læra heima í fyrsta skiptið í NÆR113... djöfull er þetta óhemju leiðinlegt8| Vissu þið að grundvallarformúla fitusýru er: CH³ (CH²)nCOOH þar sem n er einhver tala á milli 4 og 24, venjuleg slétt tala?? Nei??? Skrítið! Ég hélt að ég væri sú eina sem skildi þetta ekki!! Halló!!! Hver þarf að vita þetta?8| Ég á eftir að falla í þessu ógeði... arrrggg...:klikk: Hvað fær fólk til að vilja verða Næringarfræðingar eða e-ð soleiðis...??? Ruglað fólk...

Rosalega er ég sorgleg... er að hlusta á Celine Dion og að kvarta í ykkur hvað ég nenni þessu ekki lengur... úff...

Þetta er samt geðveikur diskur - Miracle - Ef ég loka augunum koma tár!! Sona ef maður er sona down og í pirruðu skapi eins og ég núna...:S

 

AMMA GÓGÓ

G uð sá að þú varst þreytt

Og þrótt var ekki að fá,

Því setti hann þig í faðm sér

Og sagði:,,Dvel mér hjá”

Harmþrungin við horfðum

Þig hverfa á annan stað,

Hve heitt sem við þér unnum

Ei hindrað gátum það.

Hjarta, úr gulli hannað,

Hætt var nú að slá

Og vinnulúnar hendur

Verki horfnar frá.

Guð sundur hjörtu kremur

Því sanna okkur vill hann

Til sín hann aðeins nemur

Sinn allra besta mann.

Sakna þín :*

Lag vikunnar: Celine Dion – Miracle

 

Kveð í bili

 

Magnea.. djúpt hugsi...


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 21:07:23 / magga

Nýtt - Nýtt

Er komin með sona: "Ég elska - Ég hata" dæmi... leiddist svo óhemju mikið :S

Annars er ekkert að frétta frekar en vanalega... bara skóli, skóli, skóli og aftur skóli... þarf samt ekki að mæta á morgun fyrr en 11:45, fer með Kristínu í fyrramálið... þannig að ég þarf ekki að vakna klukkan 7:!: Jibbí :haha:

Er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera um helgina... langar geggjað á Papana á laugardaginn en Sólveig var að segja mér að hún ætlaði ekki... ætli maður fari þá nokkuð... spurning um að taka sér pásu fram að 11. feb... er að fara á þorrablót með Elvu:haha: Fyrsta skiptið sem ég fer á þorrablót... ætlum reyndar bara á ballið en hver veit hvaða óbjóð maður setur uppí sig á sona þorrablóta-sveitaballi 8| En þar sem ég borða bara hangikjöt, laufabrauð og harðfisk af öllum þessum kræsingum... þá held ég að ég geti hamið mig:$

Jæja... ætlaði ekki að hafa þetta langt í þetta skiptið... þið megið alveg vera duglegri við að kommenta... Elva er liggur við sú eina sem kommentar hjá mér... hrós fyrir henni... 8)

...þar til næst...


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 13:38:23 / magga

Mánudagur til mæðu!!

Já góðann og blessaðan daginn... eða hann er nú reyndar ekki góður og blessaður hjá mér... er óeðlilega þreytt... fór í Næringarfræði í morgun og var alltaf við það að sofna... lagðist á borðið en þá kallaði kennarinn á mig... fór svo í DAN212 í morgun og dottaði örugglega 4 sinnum.. og vaknaði einu sinni við að ég var e-ð að "mumla" uppúr svefni... sem betur fer fór ég ekki að tala:!::!: Hehe... fór svo í Iðnreikning en náði að halda mér vakandi:) Mér til mikillar hamingju var svo Hreinlætis og örverufræði kennarinn lasinn...:haha: Þannig að ég er stödd hjá Elvu núna... að bíða eftir að komast heim, sem verður e-ð um 3 leitið:)

Er búin að ákveða það að ég er að fara að byrja aftur í ræktinni:) LOKSINS!!!!! Er ekki búin að fara í ræktina síðan í endaðan júlí 2005 :$ Úff... það verður erfitt að koma sér að stað... en vonandi verður maður jafn duglegur og seinast... með próteindrykki og læti:) Ætla að fara að kaupa mér hálfs árs kort örugglega þegar ég kem heim í dag8)

 Horfðu ekki allir á Eurovision undankeppnina á laugardaginn? Frikki var ekkert smá flottur... án efa flottasta lagið sem var í þessum þætti:) Vonandi að hann komist alla leið... Sjö, níu,þrettán:)

Annars er ekkert fleira að frétta... segjum þetta nóg í bili...

Magnea :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 09:40:18 / magga

Kvart og kvein!!!

Váá ég held að mér hafi aldrei leiðst jafn mikið og mér er búið að leiðast síðast liðinn klukkutímann... kom í skólann klukkan 8 of course og tíminn byrjar ekki fyrr en 09:50... þannig að ég er búin að sitja hérna inná bókasafni og í tölvunum og örugglega fara sona 3-4 hringi í gegn um bloggheiminn!! Aldrei nein ný blogg... þannig að ég er búin að vera að stytta mér stundir í Bubbles... snilldar leikur!! En svo þegar ég er búin í tímanum sem byrjar 09:50 þá fer ég í eyðu til klukkan 13:15!!! Viðbjóðslega stundaskrá... fer kannski til Gumma en veit ekki hvort ég nenni að labba... það er so kalt úti... Í einmanaleikanum hjá mér fór ég að hugsa um allt sem mér langar í... hér er brot af því:

  • BÍL :)
  • Peninga
  • Íbúð á Akureyri... það er ömurlegt að keyra á milli:evil:
  • Barn
  • Ný föt
  • Klippingu
  • Ljós
  • Að byrja aftur í ræktinni...
  • Meiri menntun svo ég þurfi ekki að vera lengur í skóla...:whut:
  • Rúmið mitt hér inná bókasafn svo ég geti lagt mig á milli tíma:haha:

...svo er hellingur í viðbót... :!:

En ég kveð í bili... tíminn fer að byrja mér til mikillar hamingju8|

Lag vikunnar: Joe Cocker - With a little help from my friends :P

*Lífið er þjáning. Ekkert í heiminum varir að eilífu og engin hamingja er varanleg því hún endar í missi, sjúkdómum og loks dauða*

Eða hvað?

Ég spyr...


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 21:13:17 / magga

Tatarata!!!!

Hver verður númer 7000 ??? Glæsileg verðlaun í boði:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 14:42:51 / magga

Föstudagurinn 13...

... er sem sagt í dag og ákvað ég að blogga eilítið í tilefni dagsins... en samkvæmt hjátrúafullu fólki þá á þessi dagur að boða ógæfu... og svo heyrði ég að það væri líka fullt tungl... á það ekki að vera þá sem menn breytast í varúlfa... eða? hvar sá ég það aftur? Emil í Kattholti...? ehemm... er ég kannski bara að rugla e-ð??:$ En allavegana trúi ég ekki á neitt sona bull...

Helgin framundan og ég hef ekki ákveðið að gera neitt sérstakt... annars segir maður það alltaf... svo vaknar maður kannski á sunnudegi í öðru húsi, drulluþunn og búin að tína gleraugun sínum!!8| sem gerðist semsagt seinustu helgi... en gleraugun eru fundin til mikillar lukku:haha: Ég senst fór með Kristjáni heim til Ingvars og Hildar og þar sátum við og spjölluðum... drukkum bjór, rauðvín, rósavín og kampavín og ég veit ekki hvað og hvað... ég gekk berserksgang um húsið og braut 2 glös;) ehh... ég er ekki velkomin þangað aftur...:) Neinei segi sona:) Skemmti mér allavegana mjög vel og so um nóttina fórum við yfir og Elva, Kata, Inga Rut, Hanna og Biggi komu og e-ð:haha: Ég og Kristján rústuðum Elvu og Bigga í Foosball spilinu! Bara gaman:haha:

Annars langar mig að fara bara í bíó um helgina og hafa það bara rólegt... langar að sjá Romour Has It en er búin að heyra að hún sé ekkert spes...;)

Er byrjuð í VMA... ekkert smá erfitt að byrja aftur í skóla eftir sona pásu... þó að hún hafi nú ekki verið lengri en ein önn... þá er erfitt að koma sér að stað... og ekki skánaði það þegar ég fékk stundatöfluna mína.. ég er í 15 einingum... og á miðvikudögum byrja ég ekki fyrr en um 10, fimmtudögum um 12 og svo eru föstudagarnir verstir.. mæti klukkan 09:50 og er búin 11:10... og þar sem ég gat ekki fært þennan tíma yfir á e-n annan dag þannig að ég yrði í fríi á föstudögum... þá þarf ég alltaf að fara á afa bíl... nenni ekki að mæta kl 8 og fara kannski ekki heim fyrr en 4 eða e-ð... en það er samt allt í lagi... er þá bara komin snemma í helgarfrí:haha:

Eftir skóla í dag þá skellti ég mér í Gallerí á útsöluna sem byrjaði í gær... átti  inneignanótu og ætlaði að kaupa mér einn bol eða e-ð... en það er ekki hægt þegar útsölurnar eru byrjaðar... risastór borð með stórum miðum sem stendur á "DISEEL GALLABUXUR 5900". Maður lætur það nú ekki framhjá sér fara... ég fór út með föt fyrir 9000 og e-ð... ánægð með það... miðað við að þetta hefði átt að kosta 20 og e-ð þúsund8| Brjálæði:!::!: Enda eru þetta einu tímarnir sem ég kaupi mér e-ð í Gallerí... á útsölum:haha:

Fer þetta ekki að verða gott í bili... fariði svo að kommenta á bloggin mín þið sem eruð að skoða... :evil: þoli ekki þegar það eru fullt af fólki búnir að koma og enginn einasti búinn að kommenta eða skrifa í gestbókina... KOMA SVO:!::!:

Ég kveð í bili... gangið hægt um gleðinnar dyr... 8)

Magnea


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 12:18:49 / magga

:)

Gripur ársins: Síminn minn
Hundur ársins: Hver önnur er Milla kellingin!
Uppgötvun ársins: Að folk getur verið óeðlilega afbríðisamt!!!
Leikur ársins: Bubbles… án efa:)

Brúðhjón ársins: Enginn…
Íþrótt ársins: Dans á djömmum
J
Afrek ársins: Bílprófið  mitt…
Gleði ársins: Svö mörg…
Idol ársins: ÞÚ
Kona ársins: Veit ekki alveg!!
Tölva ársins: Lappinn… sem ég era ð pikka á núna:haha:

Atburður ársins: Danmerkurferðin góða!
Keppni ársins: Keppni?? Veit ekki…
Tískusýning ársins: hmmm...

Tónleikar ársins: Fór ekki á neina tónleika…

Íþróttamaður ársins: ég í ræktinni… sem ég er btw ekki búin að fara í síðan í sumar…
Lag ársins: Dragostea din tei sem minnir mig óendanlega á 1-G bekkjarpartíið :!:

Undrun ársins: Þegar ég hitti Söru fyrrverandi bekkjarsystir á Strikinu í sumar… hverjar eru líkurnar á því!?
Ferð ársins: Danmörk, þar sem hún var eina ferðina sem ég fór í í sumar
Búningur ársins: ???
Eftirsjá ársins:
Vanlíðan ársins: Ekkert sem ég man eftir í augnablikinu…

Hræðsla ársins: ehh…

Sorg ársins: Það var nú bara engin rosaleg sorg 2005…
Flutningar ársins: í Grænugötu 10
Tilhlökkun ársins: Áramótin :haha:

Frétt ársins: margar merkilegar !
Æði ársins: Hitt nammið…
Góðgæti ársins: allt nammi :P

Farið vel með ykkur elskurnar mínar...:!:

 

 



 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 15:06:11 / magga

Fyrsta bloggfæsla á nýju ári:)

Jæja er kominn tími á smá blogg:) Var samt búin að skrifa þvílíkt langa bloggið... og það datt allt út!!!!!:klikk: En ég reyni að muna  það sem ég var búin að skrifa... Það er allavegana allt fínt að frétta af mér. Átti yndisleg jól með fjölskyldunni og fékk fullt af flottum gjöfum! Og ekki voru áramótin verri:) Gummi, Elva og Aron voru hjá okkur og borðuðu með okkur og skutu upp nokkrum knallettum:) Svo var leiðinni heitið heim til Kristínar var sem fullt af liðið var saman komið til að fagna nýju ári:) Svo um eitt leitið ákáðum við stelpurnar að kíkka á þetta ball sem var í Víkurröst... Váá ég sé svo mikið eftir því... Borgaði fokkin 2500 kall inn á e-a hljómsveit sem liggur við enginn veit hver er... svo fórum við upp og það voru sona 15-20 hræður sem sátu á borðum og spjölluðu... ekki einn einasti á dansgólfinu... við vorum þar í smá stund og reyndum að koma fjöri í þetta lið sem var þarna en það gekk brösulega... so þegar við vorum búnar að vera einar á dansgólfinu í þó nokkurn tíma þá ákváðum við að fara á pöbbinn:haha: Og því sé ég alls ekki eftir. Hann var reyndar alveg smekkaður en maður lét það ekki stoppa sig. Var á dansgólfinu allan tímann... fyrir utan smá klósett pásu:haha: Annars dansaði ég bara allan tímann.. enda eru strengirnir farnir að segja til sín:S Svo að sjálfsögðu gleymdi ég að kaupa Alkazeltser (???) og var búin að bóka það að verða þunn... en viti menn:!: Ég var svo hress að ég hefði getað farið og hlaupið maraþon:P Ekki slæm byrjun á nýju ári:)

Svo styttist í að maður fari til Danaveldis:P Förum mjög líklega 14 janúar... er farið að hlakka til en kvíður líka fyrir:S Á eftir að sakna allra so mikið:$ Ég byrja á því að fara á sona dönskunámskeið og kannski að finna mér einhverja smá vinnu... kem so heim um sumarið og sé þá til hvort að ég fari aftur út... fer bara allt eftir því hvernig mér gengur...:!:

En jæja... þetta er án efa lengsta blogg ársins... þið megið so alveg vera duglegri við að láta vita af ykkur... þið sem eruð að skoða...:klikk:

En ég kveð í bili...

Magnea


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 13:54:20 / magga

Gaman að þessu:)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 11:02:53 / magga

...

Jæjæ... mér datt í hug að það væri kannski kominn tími á nýtt og ferskt blogg?? Nee... ég bara nenni því ekki núna...:haha: Allavegana er enginn farinn að kvarta hingað til...:!:

Gleðileg jól rúsínurnar mínar:P Sjáumst í góðu glensi á áramótunum í Víkurröst... eða liggur leiðin ekki annars þangað hjá öllum? Ég spyr...

...þar til næst...

Magnea og jólasveinarnir þrettán8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 11:15:12 / magga

Sorglegt...:/

Anna was so happy about the house they had found. For once in her life twas on the right side of town. She unpacked her things with such great ease. As she watched her new curtains blow in the breeze. How wonderful it was to have her own room. School would be starting; she d have friends over soon. There d be sleep-overs, and parties; she was so happy It s just the way she wanted her life to be. On the first day of school, everything went great. She made new friends and even got a date! She thought, "I want to be popular and I m going to be, Because I just got a date with the star of the team!" To be known in this school you had to have clout, And dating this guy would sure help her out. There was only one problem stopping her fate. Her parents had said she was too young to date. "Well I just won t tell them the entire truth. They won t know the difference; what s there to lose?" Jenny asked to stay with her friends that night. Her parents frowned but said, "All right." Excited, she got ready for the big event But as she rushed around like she had no sense, She began to feel guilty about all the lies, But what s a pizza, a party, and a moonlight ride? Well the pizza was good, and the party was great, But the moonlight ride would have to wait. For Dan was half drunk by this time. But he kissed her and said that he was just fine. Then the room filled with smoked and Dan took a puff. Jenny couldn t believe he was smoking that stuff. Now Dan was ready to ride to the point But only after he d smoked another joint. They jumped in the car for the moonlight ride, Not thinking that he was too drunk to drive. They finally made it to the point at last, And Dan started trying to make a pass. A pass is not what Jenny wanted at all (and by a pass, I don t mean playing football.) "Perhaps my parents were right....maybe I am too young. Boy, how could I ever, ever be so dumb." With all of her might, she pushed Dan away: "Please take me home, I don t want to stay." Dan cranked up the engine and floored the gas. In a matter of seconds they were going too fast. As Dan drove on in a fit of wild anger, Jenny knew that her life was in danger. She begged and pleaded for him to slow down, But he just got faster as they neared the town. "Just let me get home! I ll confess that I lied. I really went out for a moonlight ride." Then all of a sudden, she saw a big flash. "Oh God, Please help us! We re going to crash!" She doesn t remember the force of impact. Just that everything all of a sudden went black. She felt someone remove her from the twisted rubble, And heard, "call an ambulance! These kids are in trouble! Voices she heard...a few words at best. But she knew there were two cars involved in the wreck. Then wondered to herself if Dan was all right, And if the people in the other car was alive. She awoke in the hospital to faces so sad. "You ve been in a wreck and it looks pretty bad." These voices echoed inside her head, As they gently told her that Dan was dead. They said "Jenny, we ve done all we can do. But it looks as if we ll lose you too." "But the people in the other car!?" Jenny cried. "We re sorry, Jenny, they also died." Jenny prayed, "God, forgive me for what I ve done I only wanted to have just one night of fun." "Tell those people s family, I ve made their lives dim, And wish I could return their families to them." "Tell Mom and Dad I m sorry I lied, And that it s my fault so many have died. Oh, nurse, won t you please tell them that for me?" The nurse just stood there-she never agreed. But took Jenny s hand with tears in her eyes. And a few moments later Jenny died. A man asked the nurse, "Why didn t you do your best To bid that girl her one last request?" She looked at the man with eyes so sad. "Because the people in the other car were her mom and dad." This story is sad and unpleasant but true, So young people take heed, it could have been you.8|

Langaði bara að deila þessu með ykkur:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 22:34:03 / magga

Jóla hvað!!??

Jæja!! Já ég myndi segja að ég væri komin í ansi mikið jólastuð:haha: Erum búin að vera að skreyta niðrí vinnu í þessari viku og hlusta á jólalög:D Geggjað stuð! Hinsvegar er ég ekkert búin að skreyta neitt heima... held að það taki því ekkert þar sem ég er að fara að flytja útúr henni á milli jóla og nýárs... set kannski upp eitt aðventuljós! Nenni ekki meiru8| Svo er jólaglöggið frá fristó á laugardaginn. Er búin að hlakka til í mánuð eða e-ð:!::!: Sjitt... þá verður sko tekið á því8|

 

Annars er voða lítið að frétta af mér.. veit eiginlega ekki af hverju ég er að þessu… voða fáir sem eru að fylgjast með mér… allavegana miðað við commentin…  bara leiðist svo óhemju mikið! Þarf ekki að fara í vinnu í fyrramálið! Rósa (yfirmaðurinn) tók sig bara til, hringdi í mig og sagði mér að ég mætti fara fá frí á fimmtudaginn. Ekki slæmt:D Þannig að mamma og pabbi komu á náðu í mig eftir vinnu í dag. Er samt að fara með Sólveigu í bæinn á morgun, hún er loksins að fara í bílprófið, ætlum svo að fara að versla e-ð. :haha:Kannski maður fari að huga að þessum blessuðu jólagjöfum… er ekki að nenna því.:^) Neeii var að fatta það núna að öll jólakortin eru eftir líka… nenni samt ekki að búa þau til eins og ég gerði einu sinni. Eyddi mörgum klukkutímum í að búa til jólakort, svo er liggur við ódýrara að kaupa bara!!

Æhh.. ég er orðin svo lúin… hlakka til að sofa út í fyrramálið, það er að segja ef ég vakna ekki við krakkagemlingana hérna fyrir neðan mig…

 

Segjum þetta nóg í bili…

 

Adios amigos


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8